Picture
Glódís er stór og falleg meri á 4 vetur. Hún verður líklegast 5-gangs hryssa en hún hefur sýnt allar gangtegundir, fer þó að mestu um á brokki og tölti eins og er. Hún er virkilega spök og þægileg í allri meðhöndlun. Er með mjög opinn gang og verður eflaust frábær og traust reiðhryssa. Er rúmlega bandvön og tilbúin í frekari tamningu.
Meiri upplýsingar, myndir og video af Glódísi má finna hér.


Glódís is a big and handsome mare who's turning 4 years old next spring. She's probably going to be 5-gaited but she has shown all gaits, but mostly goes around on trot and tölt at the moment. She's really docile and calm to handle and be around. She has open gaits so the tölt will be easy. Will defiantly be a great and stable riding mare. She's halter trained and ready for further training.
More information, photos and a video of Glódís can be found here.
_

 
Nóg um vera... 12/11/2011
 
Picture
Við Snerra frá Reykjavík að keppa í milliriðlum á LM 2011
Já, það er ekki annað hægt að segja en að nóg sé um að vera hjá okkur, þó svo lítið af þeim tíðindum rati hingað inn á síðuna upp á síkastið. Ég ætla þó að reyna bæta úr því með öllum ráðum á næstunni, þegar skólinn fer að klárast og hægt verður aðeins að hugsa um eitthvað annað en einungis lærdóminn.
Einnig hef ég verið upptekin við að gera síður fyrir aðra aðila, svo okkar eigin síða hefur orðið svolítið út undan vegna þessa. Dæmi um síður sem ég hef verið að gera er Eystra-Fróðholt og Goshestar, endilega kíkið á þær en þar er fullt um að vera, flott söluhross og ýmislegt fleira.

En af okkur er allt gott að frétta. Ég er á fullu í skólanum, útskrifast um jólin og því nóg um að vera í augnablikinu. Bjarki er á fullu fyrir austan í búskapnum á meðan ég ligg ofan í námsbókunum. Ég ákvað þó að taka smá forskot á sæluna og tók inn þrjú hross um miðjan október. Það voru systkinin Fálki og Sýn frá Smáratúni og svo ný meri sem við vorum að eignast, Aukning frá Kálfhóli 2. Það gengur mjög vel með þau öll, en ég var bara að taka þau inn til að byrja og dunda aðeins í þeim inn á milli ritgerðarskrifa.

Sumarið var ekkert smá fljótt að líða og haustið er líka alveg að verða búið. Núna fer að líða að prófatörn hjá mér, svo líklega mun lítið vera um uppfærslur á næstunni, en planið er að nýta jólafríið vel í að henda hrossunum inn og koma með fréttir.

 
Ný síða! 12/09/2011
 
Picture
Lífið er nú einu sinni breytingum háð og allar breytingar eru af hinu góða, svo við ákváðum að breyta bara til og fá okkur nýja heimasíðu!
123.is kerfið hefur reynst okkur vel undanfarið ár en það er alltaf gaman að prófa og læra eitthvað nýtt.

Vonandi á þessi síða eftir að vera aðeins meira lifandi en sú fyrri en það eru heldur betur margar fréttir búnar að safnast upp í sumar. Það er bara búið að vera svo mikið að gera að maður hefur ekkert náð að sinna þessari síðu og setja fréttirnar inn. Það mun þó vonandi breytast á næstu dögum og vikum og ætlunin er að hrúga inn efni á næstunni!
Stay tuned!